Próf til viðurkennds bókara

Próf til viðurkennds bókara verður á komandi hausti 2025. Prófamiðstöð Íslands mun styðjast við núverandi prófefnislýsingu, svipað skipulag og samskonar framkvæmd og verið hefur.

Próf til viðurkennds bókara verða haldin hjá Prófamiðstöð Íslands á komandi hausti 2026. Skipulag og framkvæmd prófanna verður áfram með svipuðu sniði og verið hefur.

Það verða áfram eftirfarandi þrjú próf:

  1. (1) Próf í reikningshaldi og upplýsingatækni;
  2. (2) Próf í skattskilum og
  3. (3) Raunhæft verkefni úr bæði reikningshaldi og skattskilum.


Áfram verður boðið upp á upptökupróf eftir áramót (feb 2027) eins og verið hefur. Prófamiðstöð Íslands býður þeim sem enn eiga eftir að klára eitt eða tvö próf að gera það innan þriggja ára reglunnar og eiga þannig kost á að öðlast fullgilda viðurkenningu frá Prófamiðstöð Íslands. Það verður gert í samstarfi við ráðuneytið og fráfarandi prófnefnd.

Prófin verða haldin eftirtalda daga:

  • Prófhluti 1 verður miðvikudginn 7. október, 13.00-16.00
  • Prófhluti 2 verður miðvikudaginn 18. nóvember, 13.00-16.00
  • Prófhluti 3 verður miðvikudaginn 9. desember, 10.00-15.00

 

Opnað verður fyrir skráningu í lok ágúst 2026.

Sjúkra- og upptökupróf verða haldin eftirtalda daga:

  • Prófhluti 1 verður miðvikudginn 10. febrúar, 12.00-16.00
  • Prófhluti 2 verður fimmtudaginn 18. febrúar, 12.00-16.00
  • Prófhluti 3 verður mánudaginn 15. febrúar, 10.00-16.00


Opnað hefur verið fyrir skráningu en lokafrestur til skráningar er 29. janúar 2027 .

Fulltrúar Prófamiðstöðvar hafa átt gott og jákvætt samtal við helstu hagaðila um yfirfærslu frá ráðuneytinu og fundið mikinn stuðning. 

Fulltrúar prófamiðstöðvar skipa prófnefnd og verður hún skipuð fjórum fulltrúum. Formaður prófnefndar verður óháður sérfræðingur til að tryggja hlutleysi og faglega úrlausn álitamála.

Prófamiðstöð Íslands ætlar að vinna markvisst í samstarfi við hagaðila að áframhaldandi þróun prófanna (þ.e. prófefnislýsingu og framkvæmd) til að tryggja að þau séu í takt við þróun og þarfir markaðarins á hverjum tíma. Það er fátt mikilvægara en að halda áfram að auka verðgildi viðurkenningarinnar á atvinnumarkaði.

Spurt og svarað

Prófamiðstöð Íslands mun gefa út skírteini til þeirra sem ná prófum til viðurkenningar bókara.  Þeir sem ná prófunum munu því verða viðurkenndir bókarar frá Prófamiðstöð Íslands

Í fyrstu mun prófefnislýsingin haldast með svipuðum hætti og áður og því eðlilegt framhald af því sem búið er verið að prófa í  síðustu árin. Sú ákvörðun hefur þó verið tekin að fella út bækling ríkisendurskoðunar um innra eftirlit sem prófgagn þó upplýsingar í honum séu vissulega mikilvægar í starfi bókara. 
Það verða áfram eftirfarandi þrjú próf í sömu röð og verið hefur:  (1) Próf í reikningshaldi og upplýsingatækni; (2) Próf í skattskilum og (3) Raunhæft verkefni úr bæði reikningshaldi og skattskilum.  
Markmið Prófamiðstöðvar Íslands er að halda áfram að bæta alla framkvæmd við prófin og bæta og þróa prófefnislýsinguna til samræmis við þróun og þarfir markaðarins hverju sinni.

Prófamiðstöðin mun starfrækja prófanefnd sem verður skipuð fjórum einstaklingum. Hlutverk hennar er að tryggja gæði og þróun prófanna í takt við þarfir markaðarins hverju sinni. Þar undir fellur prófagerð, framkvæmd, endurgjöf og veiting viðurkenninga.  

Prófin verða haldin eftirfarandi daga haustið 2026:

– Prófhluti 1 – miðvikudaginn 7. október

– Prófhluti 2 – miðvikudaginn 18. nóvember

 – Prófhluti 3 – miðvikudaginn 9. desember

Skráningarfrestur í alla prófhluta er 1. október 2026.

Hvert próf mun kosta 53.500kr. Til að eiga próftökurétt í sjúkra- og upptökupróf þarf próftaki að hafa greitt fyrir aðalpróf. Sjúkra- og upptökupróf kosta einnig 53.500kr.

Prófamiðstöð Íslands býður þeim sem enn eiga eftir að klára eitt eða tvö próf að gera það innan þriggja ára reglunnar og þannig öðlast fullgilda viðurkenningu frá Prófamiðstöð Íslands. Það verður gert í samstarfi við ráðuneytið og fráfarandi prófanefnd.

Skrá mig í próf

Skráning er óskuldbindandi